Símamyndir
2008 september 30
Ég ætla að herma eftir henni Tinnu og birta myndir sem leynast í gemsanum mínum. Gesso vell.
Ég minni á OSS neðar á síðunni.
Pabbi eiturflottur á sexhjólinu við viðgerðir á Staðarkirkju í sumar.
Skógarbrennan um síðustu verslunarmannahelgi. Verðlaun fyrir að giska á eiganda ennisins.
Birgir fyrir utan heimili okkar í sumar.
Bleikustu skór í heimi? Ég tel góðar líkur á því.
Þetta er nýji vinur minn hann Hjörtur. Við deilum áhuga á Disney teiknimyndum.
Og svo er hér mynd af minni yndislegu kærustu, henni Þuríði. (Ég verð ábyggilega skammaður fyrir þessa myndbirtingu)








Ég giska á að eigandi ennisins sé Birna Jónasdóttir.
Hahaha! Ég á þetta enni. Þekki það strax, hátt enni og rytjulegt hár = mitt
Er kannski bannað að giska á sjálfan sig?
hver vill ekki hafa mynd af sér á internetinu að læra
Ég sá strax að þetta varst þú Dóróthea.
Benni, ég nenni ekki þessu OSS-i.
huhumm…mér finnst þetta hreint ágætis mynd og er ekkert að kvarta sko… ég á hinsvegar eftir að fara yfir *undirhökulausarmyndatökur* með Benna… geri það á næstunni…
Augljóslega Dórótheu-enni
Sunna systir *
OSS-ið er Leppur
Gylfi: Það er hárrétt hjá þér!