Fjúríus

2009 mars 3
by benedikthreinn

Ég birti hér úrdrátt úr tveimur fréttum af dv.is um bílamál forstjóra Lífeyrissjóðs verslunarmanna. Ég er algjörlega brjálaður!! Ég borgaði í þennan lífeyrissjóð þegar ég vann hjá BT og þetta gjörsamlega gengur fram af mér!

Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri Lífeyrissjóðs verslunarmanna, hefur þegið þrjátíu milljónir á ári í laun fyrir störf sín en auk þess keyrir hann um á tíu milljóna króna Cadillac Escalade í boði sjóðsins.

Á sama tíma og forstjórinn keyrir um á bandarískum lúxusbíl af dýrustu gerð þá tapar sjóðurinn þrjátíu og tveimur milljörðum vegna fjárfestinga sinna.

“Þetta er hluti af mínum starfskjörum,“ segir Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri Lífeyrissjóðs verslunarmanna sem hefur þegið þrjátíu milljónir á ári í laun fyrir störf sín. Honum hefur verið útvegaður tíu milljón króna Cadillac Escalade til afnota í boði sjóðsins. Aðspurður hvort eldsneyti sé innifalið í þeim starfskjörum segir Þorgeir svo vera.

Eftir því sem DV kemst næst eyðir lúxusjeppinn um það bil 25 lítrum á hundraði í akstri innanbæjar en getur þó farið upp í 30 lítra á hundraði ef allur kraftur hans er notaður.

Sem dæmi má nefna tekur það íslenska láglaunamanneskju hundrað og fimm ár að borga lúxusjeppa Þorgeirs með iðgjöldum sínum sé miðað við fjögur prósenta gjöld. Þorgeir býr rúman kílómetra frá vinnustað sínum í Húsi verslunarinnar við Kringluna.

Ef  manninum með 2.5 miljónir getur ekki keypt sér sjálfur bíl til að komast á milli staða hefði átt að gefa honum strætókort eða góða skó og regnhlíf. Eða bara Yaris! Hann á að segja af sér og þeir sem réðu hann sömuleiðis!

Já ég er helvítis fokking fokk reiður!


Ein ummæli leave one →
  1. 2009 mars 4
    Aðalbjörg permalink

    Helvítis drullu fokking fokk! Maður fær bara óbragð í munnin yfir þessu.

Skildu eftir svar

Note: You can use basic XHTML in your comments. Your email address will never be published.

Subscribe to this comment feed via RSS