Áfram Ísland!
2009 mars 18
Nú er komið að tækifærinu til að taka þessa Makedóna í gegn í þessari reykmettaðri holu. Þetta verður erfitt og mikið mæðir á kjúklingunum. Engin Óli Stef, Logi, Arnór, Sigfús og Snorri og Alex eru tæpir. Ég er frekar stressaður og verður erfitt að horfa á þetta án Magna og Bigga. Ég mæli með að allir verði á msn í kvöld svo maður geti rætt stöðuna í hálfleik.
Ég ætla hér með að stofna Handboltaáhugamannafélagið Gústaf (nefnt í höfuðið á Gústaf Bjarnasyni) til að halda utan um handboltaáhorf og umræður.


Ég er gengin í félagið og mun vera á msn í kvöld.
Ég er mættur á MSN
Hvar eru allir og hvar er gervihnattasambandið?